Iðnaður

Sérsmíðaðar heyrnarvarnir fyrir krefjandi vinnuaðstæður.

Flokkur:

Lýsing

Heyrnarvarnirnar eru með fyrirfram valinni fastri dempun fyrir krefjandi vinnuaðstæður. Framleiddar úr ofnæmisprófuðu lífrænu sílikonefni eftir nákvæmu máti af eyrum notandans sem tryggir að þær sitja þétt og þægilega í eyrunum. Það fer mjög lítið fyrir þeim og því er auðvelt að nota þær með gleraugum, grímum, hjálmun og öðrum höfuðbúnaði.

Hægt er að velja um mismunandi tegundir af dempunarsíum fyrir heyrnarvarnirnar, allt eftir þörfum hvers og eins. Dempunarsíurnar eru ólínulegar sem veitir möguleika á að dempa vissar tíðnir meira en aðrar. Dempunarsíurnar hleypa mæltu máli í gegn en dempa skaðleg hljóð. Ef þarfir varðandi dempun breytast og þörf er á minni eða meiri dempun þá er hægt að skipta um síur.

Hægt er að fá heyrnarvarnirnar í mismunandi litum einnig sem hægt er að fá þær úr efni sem málmgreiningartæki nema (fyrir matvælaiðnað). Heyrnarvarnirnar er einnig hægt að fá úr akrýlefni. Það er mjög hreinlegt að nota heyrnarvarnirnar og auðvelt að þrífa þær með vatni.

Viðbætur

  • NanoScreen™ Mjúk lakkáferð*
  • Silkimött áferð
  • SoftTouch lakkáferð**
  • Merking fyrir hægra og vinstra eyra
  • Sérmerking (að hámarki 24 stafir)
  • Stálkúla fyrir málmgreiningartæki
  • Hálsól
  • Hálsól fyrir málmgreiningartæki
  • Klemma fyrir kraga
  • Hálsól með töppum, glær*
  • Verkfæri til að fjarlægja dempunarsíur

*Aðeins í boði fyrir heyrnarvarnir úr sílikoni
**Aðeins í boði fyrir heyrnarvarnir úr akrýl

Vörulýsing sem pdf skjal

 

Vörulýsing sem pdf skjal (úr málmgreinanlegu efni)
Go to Top