Almenn heyrnarþjónusta

Almenn heyrnarþjónusta samanstendur af röð þátta og mælinga. Byrjað er á að skrá sjúkrasögu skjólstæðings og að því loknu eru eyrun skoðuð og þau hreinsuð ef þörf krefur. Í þessari skoðun er hægt að sjá hvort einhver vandamál séu til staðar sem tengjast hlust eða hljóðhimnu. Í framhaldi af því er heyrnin prófuð.

Hefðbundnar mælingar sem oftast eru gerðar:

  • Loftleiðnimæling
    • Mæling á getu viðkomandi að heyra hreina tóna. Niðurstöður prófsins sýna lægsta hljóðstyrk sem viðkomandi heyrir á mismunandi tíðnum eða svo kölluð heyrnarmörk viðkomandi.
  • Beinleiðnimæling
    • Í vissum tilfellum eru heyrnarmörk einnig mæld með því að koma fyrir beinleiðara/titrara fyrir aftan eyrað. Beinleiðnimælingin sýnir hvort um er að ræða vandamál/hindrun á leiðni hljóðsins um miðeyrað.
  • Talgreiningarpróf
    • Prófið kannar getu viðkomandi til að greina tal og hvort að einhverjar heyrnartruflanir séu til staðar sem tengjast talskilningi.
  • Þrýstimælingar
    • Mæling sem metur ástand miðeyrans og hreyfanleika hljóðhimnunnar.

Í vissum tilfellum er gripið til sérmælinga.

Niðurstöður mælinga eru skráðar á heyrnarpróf/heyrnarrit, sem sýnir hvort heyrnarskerðing sé til staðar og hversu alvarleg hún er. Farið er yfir niðurstöður mismunandi mælinga, þær útskýrðar og ráðgjöf veitt um næstu skref.

SENDA FYRIRSPURN

Athugið að ekki er um að ræða bókanir hjá háls-, nef- og eyrnalækni.