Serenity SPC

Heyrnarvörn með fasta „passive“ dempun og samskiptakerfi.

Lýsing

Serenity SPC er sérsmíðuð heyrnarvörn með fasta (passive) dempun og svanaháls hljóðnema. Kerfið er hannað með notkun við krefjandi aðstæður og jafnan hljóðstyrk í huga. Hægt er að skipta um dempunarsíur og er kerfið samhæft með fjölda tegunda farsíma og talstöðva (sjá lista undir liðnum tæknilegar upplýsingar).

Serenity SPC er þægileg í notkun og býður upp á samfellda vernd og samtímis ótrufluð síma- og talstöðvarsamskipti í hávaðasömu umhverfi.

Serenity SPC er framleidd eftir nákvæmum mátum af eyrum notenda og samanstendur af sérsmíðuðum hlustarstykkjum (eShells) sem framleidd eru úr slitsterku næloni sem meðal annars er notað við framleiðslu á lækningatækjum og hlustarstykkjatengjum (earJacks™). Hlustarstykkin eru tengd með sílikonþræði með öryggislæsingum og er hægt að fá í þremur litum: græn, blá og húðlituð.

Serenity SPC er létt og þægileg heyrnarvörn, vegur einungis 22 grömm og því er auðvelt að nota hana með gleraugum, grímum, hjálmum og öðrum höfuðbúnaði. Hún hefur langan líftíma og þolir þvott í þvottavél (allt að 60°C).

Serenity SPC er slitsterk, endingargóð og hagkvæm, heyrnarvörn og er fullkomið val fyrir þá sem eru í stöðugum hávaða í starfi.

Mögulegt er að uppfæra heyrnarvörnina í önnur Serenity kerfi og nota áfram sérsmíðuðu hlustarstykkin.

Ef þarfir varðandi dempun breytast og þörf er á minni eða meiri dempun þá er hægt að skipta um dempunarsíur.

  • Sérsmíðuð hlustarstykki (eShells)
  • Situr þétt og örugglega í eyrunum
  • Auðveld síma- eða talstöðvarsamskipti í hávaða
  • Slitsterk, má þvo í þvottavél (allt að 60°C)
  • Hálsól m/öryggislæsingum og klemmu
  • Mismunandi dempunarsíur i boði
  • Gæðaeftirlit; mæling á þéttleika og dempun
  • Stálkúla fyrir málmgreiningartæki (valfrjálst)
  • Einkennisstafir grafnir í hlustarstykkin
  • PTT-hnappar (Push-to-talk) fyrir talstöðvar í boði
  • Tvær tegundir af svanaháls hljóðnemum
    • Staðlaður (stuttur armur)
    • Stefnuvirkur (langur armur, þarf að staðsetja beint fyrir framan munninn). Hentar vel í háværu umhverfi
  • Vegur einungis 22 grömm
  • Taska og hreinsiáhald fylgja


Vörulýsing sem pdf skjal

Go to Top