Serenity Classic

Sérsmíðuð heyrnarvörn með fastri „passive“ fyrirfram ákveðinni dempun.

Flokkur:

Lýsing

Serenity Classic er sérsmíðuð heyrnarvörn með fyrirfram valinni fastri (passive) dempun fyrir krefjandi vinnuaðstæður. Hún er framleidd eftir nákvæmum mátum af eyrum notenda og samanstendur af hlustar- stykkjum (eShells) sem framleidd eru úr slitsterku næloni sem meðal annars er notað við framleiðslu á lækningatækjum. Hlustarstykkin eru tengd með sílikonþræði með öryggislæsingum og er hægt að fá þau í þremur litum: græn, blá og húðlituð.

Serenity Classic heyrnarvörnin er létt og þægileg, vegur einungis 10 grömm og er auðvelt að nota hana með gleraugum, grímum, hjálmun og öðrum höfuðbúnaði. Hún hefur langan líftíma og þolir þvott í þvottavél (allt að 60°C).

Serenity Classic er slitsterk og hagkvæm heyrnarvörn og er fullkomið val fyrir notendur sem eru í stöðugum hávaða í starfi.

Ef þarfir varðandi dempun breytast og þörf er á minni eða meiri dempun þá er hægt að skipta um dempunarsíur.

  • Sérsmíðuð hlustarstykki (eShells)
  • Vegur einungis 10 grömm
  • Slitsterk, má þvo í þvottavél (allt að 60°C)
  • Hálsól m/öryggislæsingum og klemmu
  • Situr þétt og örugglega í eyranu
  • Mismunandi dempunarsíur i boði
  • Gæðaeftirlit; mæling á þéttleika og dempun
  • Stálkúla fyrir málmgreiningartæki (valfrjálst)
  • Einkennisstafir grafnir í hlustarstykkin
  • Taska og hreinsiáhald fylgja


Vörulýsing sem pdf skjal

Go to Top